Stjúpfjölskyldur - Námskeið hjá Stjúptengsl

Fræðsla á vegum Félags stjúpfjölskyldna  2009

 í samstarfi við Félagsráðgjafafélag Íslands

Af hverju fræðsla?

Flest okkar fara af stað með góðum hug í stjúpfjölskyldur og löngun til að láta hlutina ganga, þó við vitum ekki allaf hvernig. Mörg okkar rekum okkur á hluti sem koma á óvart t.d. eins og blendnar tilfinningar til stjúpbarna, flókin samskipti við maka sem snúast oft um  stjúp/börnin og fyrrverandi, óljósar hugmyndir um hlutverk og væntingar, deilur um hver á að borga hvað fyrir hvern, hvernig verða jólin og svona má lengi telja. Að ætla sér að reyna leysa þessi verkefni með kjarnafjölskylduna sem fyrirmynd er eins og að reyna leysa matador með lúdóreglum. 

Stjúpfjölskyldur hafa alla burði til að vegna vel viti þær við hverju er að búast og hvað er "normalt" fyrir þær sjálfar. Rannsóknir á stjúpfjölskyldum sýna að þeim reynist gagnlegt að fá viðeigandi upplýsingar og fræðslu til að bæta og efla þrótt sinn.

Í nýlegri rannsókn Dr. Sigrúnar Júlíusdóttur (2008) var spurt m.a. "Hve mikla þörf telur þú á sérstakri ráðgjöf og fræðslu innan opinberrar þjónustu um málefni stjúpfjölskyldna?"  Af þeim sem tóku afstöðu svöruðu 93,9% þörfina vera mikla eða nokkra. Jafnframt kom fram að 46% töldu þörf á ráðgjöf bæði við ákvarðanatöku, framkvæmd og eftir skilnað. Niðurstöður þessar voru kynntar á málþingi Félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem haldið var 27.október sl. undir heitinu "Höfum við hagsmuni barna að leiðarljósi'"

___________________________________________________________________________________________________

Átt þú og/eða makinn þinn barn/börn úr öðrum samböndum?

Paranámskeið fyrir fólk í stjúptengslum  17. janúar  2009 kl 9.00 – 13.30 .

Leiðbeinendur eru Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA og  Páll Ólafsson  félagsráðgjafi, MSW  Þau hafa hafa bæði reynslu af stjúpfjölskyldum annars vegar bæði sem stjúpbörn og hinsvegar annað sem stjúpforeldri og hitt með börn á tveimur heimilum. Jafnframt sem fagmenn.

Helstu viðfangsefni námskeiðsins eru: sérstaða stjúpfjölskyldunnar, hlutverk foreldra og stjúpforeldra, fjármál, samskipti við fyrrverandi maka.

Þeir sem greiða greitt hafa félagsgjöld eða skrá sig í félagið fyrir 15. janúar fá námsleiðið á sérstökum kjörum. Félag stjúpfjölskyldna greiðir niður þetta fyrsta  námskeið á árinu 2009.

Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld 2008. Fyrir nýja félagsmenn, sem skrá sig í félagið fyrir 15.jan. 2009  er gjaldið 6.000 kr (þar af eru 3.000 kr sem fara í félagsgjöld fyrir árið 2009). Utan félagsmenn og konur greiða kr. 10.000,-

Athugið að mörg stéttafélög veita styrki  til þátttöku á námskeiðum og fyrir viðtöl hjá félagsráðgjöfum, sálfræðingum og fl.

             "Höfðum við bæði mjög gaman af og töluvert gagn, maðurinn minn sagði seinna sama dag að þetta væru líklega þeir 4 klukkutímar sem hann   hefði best  varið í langan tíma"

Skráning er á  stjuptengsl@stjuptengsl.is eða í síma 6929101

___________________________________________________________________________________________________

Fræðsla -og stuðningur fyrir stjúpmæður   

Stjúpmæður eða m.ö.o. konur sem eiga maka sem eiga barn eða börn úr fyrri samböndum  hafa alla tíð verið til, en hlutverk þeirra hefur þó verið fremur óljóst. Flestar vilja kynnast stjúpbörnum sínum og eiga við þau góð samskipti. Hinsvegar þróast málin oft á þann veg að það sem átti að verða gjöfult og skemmtilegt verður oft kvíðvænlegt og erfitt. Að vita við hverju megi búast og hvaða tilfinningar eru algengar eflir þrótt og þor þeirra sem að henni standa.

Námskeiðið hefst  12. febrúar  og er til 5. mars 2009  alla fimmtudag frá kl. 19.30 – 21.00.  Um er að ræða fyrirlestra og umræður um stöðu stúpmæðra og leiðir til léttara lífs.

Leiðbeinandi er: Valgerður Halldórsdóttir  félagsráðgjafi, MA og og Marín Björk Jónasdóttir uppeldis- og menntunarfræðingur, MA

 Skráning fer fram í gegnmum netfangið stjuptengsl@stjuptengsl.is eða í síma 6929101 . Verð: kr 10.000,-  fyrir félagsmenn og kr. 18.000,- fyrir utanfélagskonur.  Athugið að mörg stéttafélög veita styrki  til þátttöku á námskeiðum og fyrir viðtöl hjá félagsráðgjöfum, sálfræðingum og fl.

 ___________________________________________________________________________________________________

Foreldrasamvinna eftir skilnað

Sá þáttur sem er hvað veigamestur upp á það hvernig börn koma út úr skilnaði foreldra sinna er góð foreldrasamvinna. En hvað felst í góðri foreldrasamvinnu?

Námskeiðið hefst í mars og verður það nánar auglýst síðar. Skráning fram á netfanginu stjuptengsl@stjuptengsl.is

 ___________________________________________________________________________________________________

 Fræðsla -og stuðningur fyrir börn í stjúptengslum

Verður haldið í mars og mun dagskrá verða auglýst síðar

Leiðbeinendur eru Björk Erlendsdóttir félagsráðgjafi og Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjjafi., MA 

Verð:  kr 10.000,-  fyrir börn félagsmanna og kr. 18.000,- fyrir önnur börn utanfélagsfólks. Athugið að mörg stéttafélög veita styrki  til þátttöku á námskeiðum og fyrir viðtöl hjá félagsráðgjöfum, sálfræðingum og fl. Skráning fram á netfanginu stjuptengsl@stjuptengsl.is

 

 


Valgerður Halldórsdóttir  Merkurgötu 2b  220 Hafnarfirði   sími 6929101 © 2004 Stjúptengsl