31. maí 2009 Íslenskar stjúpfjölskyldur
Barnaverndarstofa
hefur boðið formanni Félags stjúpfjölskyldna að vera meða á norrænni
barnaverndarráðstefnu í Bergen í Noregi dagana 9.-11. september nk.
Yfirskrift ráðstefnunnar er
"Umsjá á forsendum barnsins - Réttindi
barns og þroskaskilyrði í nýjum aðstæðum".
Mun formaður kynna þá þróun sem hefur verið hér á landi í málefnum
stjúpfjölskylduna.
25. maí 2009 Stjúpfjölskyldur - nýr áfangi í Háskóla Íslands
24. apríl 2009 Skýrsla um stöðu barna í ólíkum fjölskyldugerðim -
Í
samræmi við þingsályktun um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu
barna og ungmenna, sem samþykkt var á 134. löggjafarþingi, skipaði
félagsmálaráðherra þann 9. nóvember 2007 nefnd til að fjalla um stöðu einstæðra
og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra. . Nefndinni var jafnframt
falið að fjalla um réttarstöðu stjúpforeldra og aðstæður þeirra. Skyldi
meginverkefni nefndarinnar vera að kanna fjárhagslega og félagslega stöðu
einstæðra og forsjárlausra foreldra og stjúpforeldra, að skipuleggja og vinna að
söfnun upplýsinga um þessa hópa foreldra og stöðu þeirra, að fara yfir
réttarreglur sem varða hópana og gera tillögur til hlutaðeigandi ráðherra um
hugsanlegar úrbætur í málefnum þeirra á grundvelli löggjafar og/eða tiltekinna
aðgerða. Nefndin skilaði lokaskýrslu þann 24. apríl sl. og óhætt er að segja að
um mikilvæg tímamót eru að ræða í málefnum stjúpfjölskyldna á Íslandi -
stjúpfjölskyldur eru orðnar sýnilegar í opinberum gögnum.
Margar áhugaverðar tillögur eru þar að finna s.s. um aukna fræðslu fyrir stjúpfjölskyldur, að afnema skuli sjáflvirka forsjá stjúpforeldra og um heimild dómara til að dæma sameginlega forsjá sé foreldrar taldir jafnhæfir. Slóðin er:
Félagið er mjög ánægt með þá auknu athyglisem málefni stjúpfjölskyldna hafa fengið á árinu.
Félagsmálaráðherra hefur í samræmi við þingsályktun um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna, sem samþykkt var á 134. löggjafarþingi, skipað nefnd er fjalli um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra. Nefndinni verður jafnframt falið að fjalla um réttarstöðu stjúpforeldra og foreldra með sameiginlegt forræði utan sambúðar og aðstæður þeirra.
Meginverkefni nefndarinnar verður að kanna fjárhagslega og félagslega stöðu þessara foreldrahópa, að skipuleggja og vinna að söfnun upplýsinga um þessa hópa, að fara yfir réttarreglur sem varða hópana og gera tillögur til hlutaðeigandi ráðherra um hugsanlegar úrbætur í málefnum þeirra á grundvelli löggjafar og/eða tiltekinna aðgerða.
Greinargerð og tillögur nefndarinnar skulu liggja fyrir eigi síðar en 1. júní 2008.
Í nefndinni eiga sæti:
Magnús S. Magnússon, skrifstofustjóri félagsmálasviðs Hagstofunnar, verður tengiliður Hagstofunnar við nefndina varðandi gagnaöflun og úrbætur í gagnavinnslu. Sérfræðingar félagsmálaráðuneytisins munu starfa með nefndinni.
Aðalfyrirlesari í ár var dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Fyrirlesturinn nefnir hann Umhyggjan á heima í öllum skólum: Hlutverk, viðfangsefni og sjálfsmynd kennara á 21. öld.
Á málþinginu flutti formaður Félags stjúpfjölskyldna Valgerður Halldórsdóttir erindi þar sem fjallað var um samskipti stjúpfjölskyldna við skólann og mikilvægi þess að skólinn mótaði sér fjölskyldustefnu.
12. mars 2007
4. mars 2007
Reynslusögur:
Fyrirlestrar:
Fyrirspurnir
Fundarstjóri er Margrét Björk Svavarsdóttir sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar. Allir velkomnir og Garðbæingar eru hvattir til að fjölmenna á þennan fræðslufund. Auglýsinguna er að finna á slóðinni: http://www.gardabaer.is/displayer.asp?cat_id=139&module_id=220&element_id=7165
1. mars 2007
Á Árdögum Fjölbrautaskólans við Ármúla mun Valgerður Halldórsdóttir fimmtudaginn kl. 9.00 fjalla um stjúptengsl og m.a. um spurninguna "Hver tilheyrir fjölskyldunni?"
28. febrúar 2007
Hrafnhildur Halldórsdóttir og Gestur Einar Jónasson ræddu við Valgerði Halldórsdóttur félagsráðgjafa í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun m.a. um mikilvægi þess að börnum er hjálpað við að rækta vináttutengsl við skilnað foreldra þeirra og aðkomu skólans. Viðtalið er að finna á slóðinni: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4331462/1
25. febrúar 2007
Í hjóna- og sambúðarmessu í
Bessastaðakirkju kl.20.30 mun Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA flytja erindi um
“Áhrif stjúptengsla á hjónabönd”
Tónlist: Gunnar Gunnarsson á hljómborð, Tómas R. Einarsson á
bassa og Kristjana Stéfánsdóttir söngur. Allir velkomnir. Dagskrá vetrarins er
að finna á slóðinni:
http://www.kirkjan.is/gardasokn/?frettir/2007?id=10
23. febrúar 2007
23. febrúar - Áhugavert málþing "Áfram
foreldrar- áhrif skilnaðar á börn og leiðir til úrbóta" verður haldið í
Reykjanesbæ. Aðalfyrirlesarar eru: þær Erika Beckmann
sálfræðingur og forstöðumaður fjölskylduþjónustu lúthersku kirkjunnar í
Marburg í Þýskalandi og dr. Sigrún Júlíusdóttir professor í félagsráðgjöf.
http://www.reykjanesbaer.is/displayer.asp?cat_id=14&module_id=220&element_id=6086
Í þættinum Ísland í bítið á Bylgjunni í morgin kynntu þau Sirrý og Heimir námskeið fyrir stjúpmæður sem haldið verður um helgina og næstu námskeið sem verða 10 .mars fyrir pör og 17.-18. mars fyrir stjúpmæður.
Margrét Blöndal ræddi við Valgerði Halldórsdóttur félagsráðgjafa í þættinum Samfélagið í nærmynd á Rás 1 í morgun um námskeið á vegum Félags stjúpfjölskylduna sem ber yfirskirftina "Er það fjarvera kóngsins eða nærvera stjúpunnar?" Þar kom m.a. fram að stjúpmæður hafa flestar löngun til að láta hlutina ganga og mynda góð tengsl við stjúpbörn sín, en krafan um aðlögun á skömmu tíma geri þeim oft erfitt fyrir. Viðtalið er að finna á slóðinni: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4328338/3
Í vettvangsnámi náms- og starfsráðgjafa (http://www.fns.is) grunnskóla sem haldið var í Flataskóla í Garðabæ flutti VH. erindi um stjúpfjölskyldur. Kom hún m.a. inn á mikilvægi þess að þeir sem starfa með stjúpfjölskyldum þekki til helstu verkefna þeirra og sérstöðu.
Í Fréttablaðinu birtist viðtal við Valgerði Halldórsdóttiur undir heitinu "Flókin tengsl stjúpfjölskyldna" Þar er m.a. greint frá því hvað skólinn getur gert til að koma á móts við börn fráskilinna foreldra í stjúptengslum. Slóðin er: http://vefblod.visir.is/public/index.php?s=504&p=16793 blaðsíða 18
Viðtal við Valgerði Halldórsdóttur félagsráðgjafa, MA í Vikunni sem ber yfirskriftina "Pabbi ræður um pabbahelgar" Þar er fjallað m.a. um foreldrasamvinnu.
Í Blaðinu birtist viðtal við formann Félags stjúpfjölskylduna undir heitinu "Vináttan er flestum börnum nóg". Þar er m.a. rætt um jólin, margbreytileika stjúpfjölskyldna, tengslamyndun og mikilvægi þess að sýna sveigjanleika í stjúpfjölskyldum. Viðtalið er að finna á slóðinni: http://www.bladid.com/lisalib/getfile.aspx?itemid=2130 síður 44-45
Morgunblaðið birti viðtal við formann Félagsstjúpfjölskyldna í tilefni 1 árs afmæli félagsins undir heitinum "Stjúpfjölskyldur gerðar sýnilegar". Þar er m.a. fjallað um hvaða áhrif það getur haft á sjálfsmynd barna ef ekki er gert ráð fyrir fjölskyldugerð þeirra í samfélaginu.
Félag stjúpfjölskyldna var kynnt á Morgunvakt Rásar 1 og fjallað var m.a. um fræðslufund félagsins um erfðamál í stjúpfjölskyldum. Slóðin er http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4275800
6. nóvember 2006
Símalínan komin í lag! Bilun var í símalínu símaráðgjafarinnar 9015000 sem gerði það að verkum að ekki náðist samband. Eru allir þeir sem urðu fyrir óþægindum af þeim völdum beðnir afsökunar.
6. nóvember 2006
Aðalfundur Félags stjúpfjölskyldna verður 11. nóvember kl. 14.00. Venjuleg aðalfundastörf.
Nánar um fundarstaðinn Hringsjá þar sem er starfsþjálfun fatlaðra – Hátúni 10d í Reykjavík: keyrt er inn fyrir háu húsin 3 í Hátúni og þá blasir við hvítt bogadregið hús á einni hæð sem merkt er Hringsjá. Húsið snýr að gatnamótum Laugavegs og Suðurlandsbrautar.
6. nóvember 2006
Fræðslufundir verður 11. nóvember um erfðamál í stjúpfjölskyldum. Ingibjörg Bjarnardóttir lögmaður hjá Lögsátt verður með framsögu og svarar síðan spurningum fundamanna í lokin. Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA verður fundastjóri.
Nánar um fundarstaðinn Hringsjá þar sem er starfsþjálfun fatlaðra – Hátúni 10d í Reykjavík: keyrt er inn fyrir háu húsin 3 í Hátúni og þá blasir við hvítt bogadregið hús á einni hæð sem merkt er Hringsjá. Húsið snýr að gatnamótum Laugavegs og Suðurlandsbrautar.
3. nóvember 2006
Viðtal við formann Félags stjúpfjölskyldna í Vikunni þar sem rætt er m.a. um samskipti kynmæðra, stjúpmæðra og kynföður.
19/20. október 2006
Í þættinum milli 6 og 7 á Skjá einum er m.a. viðtal við séra Þórhall Heimisson og Valgerði Halldórsdóttur félagsráðgjafa, MA um fjölskyldur samtímans. Þar var m.a. fjallað um samskipti stjúpfjölskyldna og skólans og kynnt veggspjald um efnið sem er til sýnis á málþingi Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands.
Slóðin er: http://skjarinn.is/skjareinn/innlendir_thaettir/thattur/detail/store35/item7811/
14. september 2006
Fyrsti fræðslufundur Félags stjúpfjölskyldna "Með Matador með Lúdóreglum" - hvers er að vænta í stúpfjölskyldum? - Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA og formaður félagsins flytur erindið.
Fjallað var um Félag stjúpfjölskylna í DV í mánuðinum.
13. september 2006
Viðtal Leif Hauksson við Valgerði Halldórsdóttir formann Félags stjúpfjölskyldna í Samfélaginu í nærmynd http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4262331
Ágúst 2006
Í ágúst var m.a. Félag stjúpfjölskylda kynnt í þættinum Víðsjá
17. ágúst 2006
Í þýska dagblaðinu Frankfurter Rundschau birtist grein eftir blaðamanninn Alva Gehrmann um íslenskar stjúpfjölskyldur sem hún kallaði "bútasaums-fjölskyldur". Fannst henni áhugavert þegar hún dvaldi hér á landi á síðasta ári, hve margir sem hún var í sambandi við voru í stjúptengslum. Tók hún viðtöl við nokkra aðila um stjúpfjölskyldur og m.a. ritstjóra síðunnar. Greinin birtist 9. ágúst sl.
Málefni stjúpfjölskyldna var á dagskrá síðdegisútvarpsins Rásar 2 í mánuðinum og jafnframt var Félag stjúpfjölskyldna til umræðu í Laufskálanum. Þar var m.a. sagt frá væntanlegum feðradegi sem verður í haust og hefur Félag stjúpfjölskyldna ákveðið að taka þátt í þeim degi. Jafnframt var kynnt símaráðgjöf Stjúptengsla sem opnar 19. ágúst n.k.
2. febrúar 2006
Fyrsti fræðslufundur félagsins var 2. febrúar og greind Björk Erlendsdóttir meistaranemi í félagsráðgjöf frá rannsókn sinni á upplifun ungs fólks á því að búa eða tilheyra stjúpfjölskyldu. Júlía Sæmundsdóttir greindi frá sinni persónulegu reynslu af því að alast upp í stjúpfjölskyldu. Var framsaga þeirra í alla staði mjög áhugaverð og sköpuðust áhuaverðar umræður í lokin.
24. nóvember 2005
Stofnað var Félag stjúpfjölskyldna í Lögbergi í Hí. Rúmlega 30 manns mættu á fundinn en stofnfélagar eru 89. Kosinn var formaður Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi og ritstjóri www.stjuptengsl.is, Hjalti Björnsson dagskrárstjóri SÁÁ, Hallfríður Brynjólfsdóttir útgerðakona Hafgúan, Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá Heimili og skóla og Marín Björk Jónasdóttir náms- og starfsráðgjafi Hringsjá. Í varastjórn eru Árni Einarsson framkvæmdastjóri fræðslumiðstöðvar í Fíknivörnum, Björk Erlendsdóttir félagsráðgjafi MS og Jón Freyr Jóhannsson aðdjunkt HR. Skoðunarmenn eru Júlía Sæmundsdóttir nemi í félagsráðgjöf og Ólafur G. Gunnarsson ráðgjafi ÓB ráðgjöf. Stefnt er að því að halda fyrsta fund félagsins í janúar.
24. nóvember 2005
Fréttablaðið kynnti væntanlegan stofnfund Félags stjúpfjölskyldna og ræddi m.a. við einn stofnfélaga þess Bryndísi Evu Jónsdóttur.
1. september 2005
Lísa Pálsdóttir útvarpskona á Dægurmálaútvarpi Rásar tvö, ræddi við ritstjóra síðunnar um væntanlegan stofnfund Félags stjúpfjölskyldna sem haldinn verður 24. nóvember nk. Hér má hlusta á viðtalið.
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4230631/81. september 2005
Verið er að kanna grundvöll fyrir samstarfi Umboðsmanns barna og Stjúptengsla um málefni stjúpbarna og fjölskyldna þeirra. Ritstjóri átti fund með Ingibjörgu Rafnar, umboðsmanni barna, og starfsmönnum embættisins í morgun, þar sem báðir aðilar upplýstu um hlutverk hvor annars og hugsanlega samstarfsfleti. Frekari frétta verður að vænta í október.
30.ágúst 2005
"Stjúpfjölskyldur stofna félag" var baksíðufrétt á DV og var rætt þar við einn stofnfélaga, Þór Jónsson, um væntanlegan stofnfund. Gert er ráð fyrir að stofnfundurinn verðu 24. nóvember nk.
Undirbúningur er í fullum gangi að hefja símaráðgjöf í haust. Við erum með númerið 9015000. Með henni er m.a. ætlunin að koma á móts við fjölskyldur úti á landi og aðra þá sem vilja leita sér ráðgjafar í gegnum síma um mál sem snerta stjúpfjölskyldur, s.s. umgengni, aga, samskipti við fyrrverandi maka, fjármál, hlutverk stjúpforeldra, stjúpafa og stjúpömmu. Rétt er að taka fram að persónuleg viðtöl verða áfram í boði fyrir pör og fjölskyldur. Öll ráðgjöf fer fram í trúnaði.
14. ágúst 2005
Í samstarfi við Námsflokka Hafnarfjarðar verður námskeið fyrir stjúpfjölskyldur, og fræðslu- og stuðningshópur fyrir stjúpmæður. Sjá nánar í auglýsingu síðar.
7. ágúst 2005
Umræða um skilnaði og málefni stjúpfjölskyldunnar var á Talstöðinni í uppeldisþætti Berghildar Bernharðsdóttur. Ásamt ritstjóra síðunnar voru viðmælendur þáttarins Dr. Sigrún Júlíusdóttur, prófessor í félagsrágjöf, Rannveig Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, og Björk Erlendsdóttir, félagsráðgjafi og MSW nemi.
19. júní 2005
Morgunsjónvarp Stöðvar 2 "Ísland í bítið" var með umfjöllun um málefni stjúpfjölskyldna.
Málefni stjúpfjölskyldunnar voru á dagskrá í þættinum "Fólk með Sirrý" á Skjá einum og var efni þáttarins sumarfríið.
1. maí 2005
Fræðsludagur fyrir pör í stjúpfjölskyldum verður laugardaginn 7. maí. Sjá nánar á vef.
13. febrúar 2005
Í tímaritinu Uppeldi 5. tbl. 17.árg. - birtist grein eftir ritstjóra sem ber heitið "Þú ert ekki pabbi minn" og fjallar hún m.a. hlutverk stjúpforeldra og væntingar kynforeldra.
23. mars 2005
Undirbúningur er hafinn að símaráðgjöf fyrir stjúpfjölskyldur. Stefnt er að því að hún hefjist í haust.
2. mars 2005
"Mikið vildi ég hafa fengið þennan fyrirlestur fyrr, hlutirnir hefðu ef til vill orðið auðveldari í byrjun," sagði stjúpmóður tveggja barna sem sótti fræðslufund á vegum foreldrafélaga Lindaskóla og leikskólanna Núps og Dals í Kópavogi sem fjallaði um stjúpfjölskyldur. Fundurinn var vel sóttur og komu á milli 40 og 50 manns.
14. febrúar 2005
Námskeið á vegum Stjúptengsla var kynnt í DV. Þar var m.a. vakin athygli á því að hefðbundin námskeið fyrir foreldra gagnast ekki stjúpfjölskyldum nógu vel.
14. janúar 2005
Fræðslu- og stuðningshópur fyrir stjúpmæður kemur saman 27. janúar 2005. Verða fundir á fimmtudögum milli kl. 19.30 og 21.00 í sex vikur.
14. janúar 2005
Í tímaritinu Uppeldi 5. tbl. 17.árg. - vetur 2004 birtist grein eftir ritstjóra sem ber heitið "Tímabundið hlé" og fjallar um mikilvægi þess að kynforeldri gefi börnum í umgengni sérstakan tíma með þeim einum.
12. janúar 2005
Viðtal var við ritstjóra heimasíðunnar í Vikunni sem kom út þann 9. nóvember sl. og bar þann áhugaverða titil "Mamma, eru skrímsli og stjúpur nokkuð til?". Fimm ára gutti spurði móður sína þessa hálf skelkaður. Hvað segir þetta okkur um innrætinguna sem á sér stað í gegnum gömlu ævintýrin?
20. október 2004
Vefsíðan okkar vekur stöðugt athygli og umræðu. Málefni stjúpfjölskyldna voru tekin fyrir í sjónvarpsþættinum Fólk með Sirrý á Skjá einum. Á vefsíðunni www.s1.is er að finna reynslusögur af þessu tilefni. Á síðunni okkar er einnig að finna viðtal við Björk Erlendsdóttur félagsráðgjafa, sem var meðal viðmælenda í þættinum, um rannsókn hennar á reynslu barna af stjúpfjölskyldum.
21. september 2004
Vaxandi áhugi á málefnum stjúpfjölskyldna. Vefurinn okkar kynntur á Létt 96,7
11. september 2004
Fyrsta haustnámskeiðið var 11. september og voru námskeiðshaldari og þátttakendur sammála um að vel hafi tekist. Þátttakendum fannst gildi þess ekki síst felast í því að heyra í öðrum stjúpfjölskyldum eða eins eins og einn þátttakanda orðaði það: "Gott að fá að heyra að maður stendur ekki einn í þessu flókna ferli, yfirferð efnis góð". Einum þátttakanda fannst ef til vill mætti hafa hópinn einsleitari t.d. undirbúningsnámskeið fyrir "verðandi stjúpforeldra og fjölskyldur" og svo "fyrir lengra komna". Flestir voru sammála um að námskeiðið hafi verið hæfilega langt fyrir utan einn sem taldi að að það mætti vera lengra.
26. júlí 2004
Námskeiðin hefjast í haust um miðjan september. Skráning er hafin á vefnum.
20. júlí 2004
DV kynnti vefinn okkar undir fyrirsögninni: "Margur óviss um hlutverk sitt sem stjúpforeldri í nýrri fjölskyldu". Í greininni er m.a. sagt frá væntanlegum námskeiðum og vakin athygli á þörfinni á umræðu um málefni stjúpfjölskyldna.
16. júni 2004
Í Morgunblaðinu þann 16. júní sl. birtist viðtal Ásdísar Haraldsdóttur blaðamanns við Valgerði Halldórsdóttur ritstjóra síðunnar. Umræðan um "upplifað" stuðningsleysi hefur vakið nokkra athygli, en það þarf ekki að vera raunverulegt.
1. júni 2004
Síðunni okkar hefur verið sýndur mikill áhugi síðan hún var formlega opnuð þann 18. maí sl. Til gamans birti ég í þetta sinn upplýsingar frá Símanum varðandi heimasíðuna.
Hver eining (+) táknar 200 beiðnir á síður eða að hluta af.
mánuður: #beiðnir: síður:
--------: --------: -----:
Maí 2004: 16588: 8826:
+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
21. maí 2004
Er ég í platfjölskyldu? Fréttablaðið sjá meira
18. maí 2004
Vefurinn var formlega opnaður í hópi góðra stjúpforeldra. Vefurinn var jafnframt kynntir í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 í "Ísland í bítið"
14. maí 2004
Stjúpfjölskyldur, hver á eða má? Námskeið fyrir stjúpfjölskyldur verður haldið 12. júní nk. á vegum Stjúptengsla. Leiðbeinandi er Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi og stjúpa.
13. maí 2004
Heimasíðan verður formlega opnuð 18. maí nk.
|
|
|
Valgerður Halldórsdóttir
|