Vetrardagskrá Félags stjúpfjölskyldna
2009
15. janúar Tvö hlutverk í sömu fjölskyldu – móðir og stjúpa
Kl. 17 – 18 Marín Björk Jónasdóttir uppeldis- og menntunarfærðingur, MA
17. janúar Átt þú eða maki þinn barn eða börn úr öðrum samböndum
Kl. 9 – 13.30 Páll Ólafsson og Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafar
12. febrúar Faðir með börn á tveimur heimilum
Kl. 17 – 18 Páll Ólafsson félagsráðgjafi, MA
12. febrúar til 5. mars Fræðslustundir fyrir stjúpmæður
Kl. 19.30 - 21.00 Marín Jónasdóttir uppeldis - og menntunarfræðingur, MA og Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA
12. mars Hver á að vera á fermingarmyndinni?
Kl. 17 – 18 Fyrirlesari: Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA
mars Fræðslu- og stuðningsstundir fyrir börn í stjúptengslum
Leiðbeinendur eru Björk Erlendsdóttir og Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafar
mars Foreldrasamvinna eftir skilnað
Leiðbeinandi Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA. Verður námskeiðið auglýst síðar.
16. apríl Börn í stjúpfjölskyldum
Kl. 17 – 18 Fyrirlesari: Björk Erlendsdóttir félagsráðgjafi og MSW nemi
Skráning á fyrirlestra frá kl. 17-18 er á netfangið stjuptengsl@stjuptengsl.is
Tími 17.oo-18.00 og spjall á eftir fyrir það sem vilja til 17.00
Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir félagsmenn og kr. 1.500,- fyrir aðra.
Staður Borgartún 6, Reykjavík
*******************************************************************
Aðalfundarboð
Félags Stjúpfjölskyldna 2008
Haldinn verður aðalfundur í Félagi stjúpfjölskyldna fimmtudaginn 30. október 2008. Kl 17.00 – 19.00 í Borgartúni 6, 3ju hæð.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar um störf hennar og starfsemi félagsins
3. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
4. Umræður um skýrslu stjórnar, ársreikning og afgreiðslu hans
5. Breytingar á samþykktum þessum
6. Kosning formanns, annarra stjórnarmanna og tveggja skoðunarmanna
7. Ákvörðun um félagsgjöld
8. Önnur mál
Að loknum aðalfundarstörfum verður boðið upp á tvö erindi.
· Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA “Nýir (ó)þægindahringir við stofnun stjúpfjölskyldunnar”
· Marín Björk Jónasdóttir Uppeldis og menntunarfæðingur, MA „Tvö hlutverk á sama heimili – mamma & stjúpa “
Einnig verður boðið upp á fyrirspurnir og umræður í lok fundar.
*******************************************************************
Námskeið á vegum félags stjúpfjölskyldna
í samstarfi við Félagsráðgjafafélag Íslands
Boðið verður upp á námskeið fyrir pör sem eru í stjúpfjölskyldum laugardaginn 15. Nóvember 2008 kl 9.00 – 13.00
Leiðbeinendur: Valgerður Halldórsdóttir – Félagsráðgjafi, MA og Formaður Félags Stjúpfjölskyldna. Páll Ólafsson – Félagsráðgjafi, MA
Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn. Fyrir nýja félagsmenn, sem skrá sig í félagið er gjaldið 6.000 kr (þar af eru 3.000 kr. sem fara í félagsgjöld fyrir árið 2008) Utan félagsmenn og konur greiða kr. 10.000.
Flest stéttarfélög greiða niður námskeið og viðtöl/ráðgjöf fyrir félagsmenn sína,
*******************************************************************
Vetrardagskrá Félags stjúpfjölskyldna 2006-2007
Fundarstaður er Hringsjá – Hátúni 10d. (keyrt inn fyrir háu húsin 3 í Hátúni og þá blasir við hvítt bogadregið hús á einni hæð sem merkt er Hringsjá. Húsið snýr að gatnamótum Laugavegs og Suðurlandsbrautar)
14. september - fimmtudagur kl 17.15 – 18.15 - "Hvernig er hægt að efla fjölskylduþrótt stjúpfjölskyldna? Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi, MA
11. nóvember - laugardaginn kl. 12.00-13.30 - "Erfðamál í stjúpfjölskyldum"
Margvíslegar
spurningar vakna þegar einstaklingar sem eiga börn af fyrri samböndum ganga í
hjónaband. Gildir t.d. reglan um setu í óskiput búi um stjúpfjölskyldur? Hver
erfir hvern og af hverju?

Ingibjörg Bjarnardóttir, lögmaður hjá Lögsátt mun halda erindi um erfðamál í stjúpfjölskyldum og svara síðan fyrirspurnum á fræðslufundi hjá Félagi stjúpfjölskyldna. Sjá m.a. á Lagaleg staða stjúpfjölskyldna
Allir eru velkomnir á fundinn og kostar kr. 500 fyrir aðra en félagsmenn. Kaffiveitingar eru í boði félagsins og eru félagsmenn hvattir til að taka með sér gesti.
11. nóvember - laugardaginn kl. 14.00-15.00 -
Aðalfundur Félags stjúpfjölskyldna og skýrsla stjórnar - venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Til hamingju með eins árs afmælið
Félag
stjúpfjölskyldna varð eins árs
24.
nóvember 2006.
Félagið
var stofnað í Lögbergi
Háskóla Íslands
og eru stofnfélagar rúmlega 90.
Í tilefni afmælisins var keypt kaka á félagsfund/aðalfund félagsins þann 11. nóvember sl. fyrir fundamenn. Fundurinn var í alla staði vel heppnaður og þátttaka góð.
Ingibjörg Bjarnardóttir lögmaður hélt erindi um erfðamál í stjúpfjölskyldum og á aðalfundinum var stjórn félagsins endurkosin.
__________________________________________________________________________
Stofnfundur Félags stjúpfjölskyldna

Félag stjúpfjölskyldna (FSF) var stofnað þann 24. nóvember 2005. Stofnfélagar eru 90
Valgerður Halldórsdóttir setti fundinn og síðan ávarpaði hann Dr. Sigrúnar Júlíusdóttur. Sagði hún m.a. að brotið hefið verið blað í sögu fjölskyldunnar hér á landi með stofnun félagsins. Samþykktir félagsins voru bornar upp og samþykktar einróma. Síðan koma að kjöri formanns, aðal - og varamanna og að lokum skoðunarmanna.
Á myndinni eru:
Hjalti Björnsson, stjórnarmaður, Júlía Sæmdundsdóttir skoðunarmaður, Hallfríður Brynjólfsdóttir, stjórnarmaður, Björk Erlendsdóttir varamaður í stjórn, Valgerður Halldórsdóttir formaður, Helga Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarmaður, Marín Björk Jónasdóttir, stjórnarmaður og Ólafur G. Gunnarsson, skoðunarmaður. Á myndina vantar Árna Einarsson og Jón Frey Jóhannsson varamenn í stjórn.
Að þessu loknu var boðið upp á veitingar og las Gunnar Hersveinn upp úr nýútkominni bók sinni "Gæfuspor - gildin í lífinu" Áhugaverðar umræður spunnust síðan í framhaldið.
Fyrsti stjórnarfundur FSF verður 27. nóvember og er ætlunin að hafa fyrsta fræðslufundinn í janúar nk. Þeir sem óska eftir að gerast félagsmenn geta hringt í síma 6929101 eða sent netpóst á netfangið stjuptengsl@stjuptengsl.is
Aðalfundur Félags stjúpfjölskyldna 2006
Fundurinn var haldinn 11.11.06 í framhaldi af áhugaverðu erindi Ingibjargar
Bjarnardóttur lögmanns hjá Lögsátt um erfðamál í
stjúpfjölskyldum. Líflegar umræður sköpuðust um
efnið. Ljóst er að töluverðra ranghugmynda og vanþekkingar gætir þegar kemur að erfðamálum. Til að mynda að mikill munur á stöðu sambúðarfólks og hjónafólks.
Hinsvegar virðist sem að ýmisskonar samninga sé hægt að gera sín á milli til að tryggja hagsmuni allra aðila. Ingibjörg Bjarnardóttir lögmaður
Í
skýrslu stjórnar kom fram m.a. að sjö stjórnarfundir voru á árinu og fjórir
fræðslufundir um: börn í stjúpfjölskyldum, stjúpmæður, fjölskylduþrótt
stjúpfjölskyldna og sá síðasti um erfðamál í stjúpfjölskyldum.
Stjórnin
var endurkosin einróma en í stað Árna Einarssonar varamanns kemur inn Ágúst
Ásgeirsson og í stað Ólafs G.Gunnarssonar skoðunarmanns kemur inn Ingibjörg
Stefánsdóttir.
Stjórn Félags stjúpfjölskyldna 2006-2007
Marín Jónasdóttir, Hjalti Björnsson, Valgerður Halldórsdóttir, Helga Margrét Guðmundsdóttir og Hallfríður Bryjólfsdóttir.
|
|
|
Valgerður Halldórsdóttir
|